Ungir kenna öldruðum á spjaldtölvur

Ákveðið hefur verið að nemendur Þelamerkurskóla í Hörgársveit kenni íbúum öldrunarheimilisins Hlíðar á Akureyri á spajdtölvur, en í skólanum hefur verið lögð áhersla á nýta spjaldtölvu við kennslu og nám. Sem hluta af valgreinum á vorönn gafst nemendum kostur á að taka að sér verkefnið. „Farið verður á öldrunarheimilið Hlíð á Akureyri og kennd notkun og meðferð Ipad spjaldtölvunnar. Hver og einn kennir einum eða tveimur heimilsmönnum notkun spjaldtölvunnar t.d. að lesa fréttir á spjaldtölvunni, facebook, myndsímtöl og annað sem kemur að gagni. Hámarksfjöldi 8 nemendur," segir á heimasíðu Hlíðar.

Átta nemendur 7. til 10. bekkjum Þelamerkurskóla völdu að taka þetta valnámskeið. Miðað er við að kennt verði í eina klukkustund, einu sinni í viku næstu 6-8 vikurnar.

Nýjast