Ung klassík í Hofi

Jón Svavar og Guðrún Dalía
Jón Svavar og Guðrún Dalía

Fyrstu tónleikarnir í tónleikaröðinni Ung klassík verða haldnir í menningarhúsinu Hofi á fimmtudagskvöld. Flytjendur eru Jón Svavar Jósefsson  bass-baritónsöngvari og Guðrún Dalía Salómonsdóttir píanóleikari. Á dagskránni eru vitfirrt íslensk sönglög. Magnþrungin tregaljóð og sönglög eftir Karl O. Runólfsson, Sigvalda Kaldalóns, Árna Thorsteinson, Jón Leifs, Jón Ásgeirsson, Sveinbjörn Sveinbjörnsson og fleiri.

Samstarf Guðrúnar og Jóns hefur varað um árabil. Fyrir nokkrum árum fóru þau af stað með tónleika þar sem efnisskráin samanstóð af drauga og hestalögum og nú hafa þau þróað það efnisval enn frekar, segir í tilkynningu.

Nýjast