Umsjón með Krossanesborgum

Umhverfisnefnd Akureyrar hefur samþykkt samning milli Umhverfisstofnunar og Akureyrarkaupstaðar um umsjón og rekstur fólkvangsins í Krossanesborgum. Borgirnar voru friðlýstar sem fólkvangur árið 2005. Markmiðið er að vernda svæðið til útivistar almennings, náttúruskoðunar og fræðslu. Auk þess er verndaður mikilvægur varpstaður fjölda fuglategunda, búsvæði sjaldgæfra plöntutegunda og sérstæðar jarðmyndanir og þannig stuðlað að varðveislu líffræðilegrar og jarðfræðilegrar fjölbreytni. Stærð fólkvangsins er um 115 hektarar.

Nýjast