Umhleypingar og fjöll

Íslendingar fóru ekki varhluta af banka- og fjármálakreppunni sem dundi á þjóðinni haustið 2008. Í erindi sínu á lögfræðitorgi Háskólans á Akureyri fjallar Hjálmar S. Brynjólfsson um breytingar sem unnið hefur verið að í Evrópu í kjölfar kreppunnar og gerir grein fyrir tilskipunum og reglugerðum sem settar hafa verið og unnið að innan ESB í því skyni að bregðast við afleiðingum hennar. Fjallað verður um samevrópskar og yfirþjóðlegar eftirlitsstofnanir innan Evrópu og þau vandamál sem snúa að Íslandi vegna innleiðingar reglugerða um valdheimildir umræddra stofnana. Sérstaklega verður fjallað um efnisatriði er varða CRD IV/CRR, nýja tilskipun og reglugerð sem munu innleiða Basel III staðalinn um eiginfjárkröfur banka.

Fyrirlesturinn verður fluttur á morgun í stofu M101

Nýjast