Umferð þyngist til Akureyrar

Mynd/Þröstur Ernir.
Mynd/Þröstur Ernir.

Umferð til Akureyrar hefur aukist jafnt og þétt í dag en Bíladagar fara fram um helgina. Lögreglan á Akureyri er með aukið eftirlit á vegum og þegar hafa tugir ökumanna verið stöðvaðir fyrir of hraðan akstur. Á fésbókarsíðu lögreglunnar á Akureyri er biðlað til ökumanna að hægja á sér og nota peningana frekar í að kaupa sér þá margþættu þjónustu sem í boði er á Akureyri. Nógu dýrt sé að aka milli staða svo sekt fyrir of hraðan akstur bætist ekki við.

throstur@vikudagur.is

Nýjast