Viðsnúningur varð í umferðinni á Hringveginum á síðast ári. Umferðin á 16 talningarstöðum jókst um 3,6 prósent eftir nær samfelldan samdrátt í umferðinni síðan árið 2007. Umferðin er núna ríflega það sem hún mældist árið 2006, samkvæmt samantekt Vegagerðarinnar.
Eins og fyrr segir jókst umferðin á landinu öllu á síðasta ári um 3,6 %. Á Suðurlandi var aukningin 4,8 % og á höfuðborgarsvæðinu jókst umferðin um 2,9 %. Á Vesturlandi var aukningin 3,7 %, Norðurlandi 4,8 % og á Austurlandi 11.8 %