Um 2600 börn við nám í vetur

Brekkuskóli á Akureyri.
Brekkuskóli á Akureyri.

Skólastarf hófst í grunnskólum Akureyrar í síðustu viku en þá var skólasetning við flesta þeirra. Alls eru tíu grunnskólar starfandi á vegum Akureyrarbæjar, átta á Akureyri og sitthvor grunnskólinn er svo í eyjunum sem tilheyra sveitarfélaginu, í Hrísey og Grímsey. Alls verða rúmlega 2600 börn í grunnskólum bæjarins í vetur og er það svipaður fjöldi og var í fyrravetur að sögn Karls Frímannssonar framkvæmdastjóra á Skóladeild.

Tæplega 500 börn eru nú að stíga sín fyrstu skref í grunnskóla, en alls verða 484 sex ára börn í fyrsta bekk í vetur. Brekkuskóli er sá fjölmennasti með 485 nemendur en fámennastur er Oddeyrarskóli með 196 nemendur, ef frá er talinn Hlíðarskóli þar sem eru 20 nemendur í dagskóla. Karl segir að allar kennarastöður við grunnskóla Akureyrar séu skipaðar fagmönnum og búið sé að ráða í þær stöður sem auglýstar hafa verið, hvort heldur sem er kennarastöður eða aðrar stöður við skólana.

Stóra sameiginlega verkefni grunnskólana á komandi vetri er innleiðing nýrrar aðalnámskrár og segir Karl að Miðstöð skólaþróunar Háskólans á Akureyri muni leiða það verkefni ásamt hópi kennara.

Nýjast