Tvöfaldur Herra Afríka býr á Akureyri

Ástfangin og tilbúinn í foreldrahlutverkið. Mynd/Þröstur Ernir.
Ástfangin og tilbúinn í foreldrahlutverkið. Mynd/Þröstur Ernir.

Fjóla Björk Gunnlaugsdóttir frá Akureyri og David Nyombo frá Tansaníu í Afríku eiga margt sameiginlegt þrátt fyrir að koma hvort frá sinni heimsálfunni. Þau kynntust fyrir um tveimur árum, urðu fljótt ástfangin og hafa búið saman á Akureyri í tæpt ár. Fjóla varð ólétt skömmu eftir komuna til Íslands og segja þau spennandi tilhugsun að takast á við foreldrahlutverkið.

David var valinn Herra Afríka í tvígang, árin 2008 og 2009 og er stjarna í sínu heimalandi. Hann segist lítið hafa vitað um Ísland áður en hann kom til landsins. „Ég hef ferðast víða undanfarin ár vegna keppnismóta, m.a. til Evrópu. En satt að segja hafði ég lítið heyrt talað um Ísland og þegar við vorum búin að ákveða að flytja voru margir vinir mínir steinhissa. Þeir spurðu hvort ég væri brjálaður,“ segir David og hlær.

„Mamma hringir oft í mig og vill fá að vita hvort það séu ekki örugglega í lagi með mig, að ég sé ekki að deyja úr kulda og segir mér sífellt að klæða mig vel.“

throstur@vikudagur.is

Ítarlegt viðtal við David og Fjólu má nálgast í prentútgáfu Vikudags.

Nýjast