128. þing Alþjóðaþingmannasambandsins er þessa dagana haldið í Quito í Ekvador. Helstu umræðuefni þingsins verða hlutverk þjóðþinga við vernd almennings, sanngjörn viðskipti og nýbreytni við fjármögnun fyrir sjálfbæra þróun og hlutverk fjölmiðla, þ.m.t. samskiptavefja á internetinu, við að stuðla að þátttöku borgaranna og lýðræði. Jafnframt fer fram sérstök umræða um nýjar nálganir og leiðir til að stuðla að sjálfbærri þróun ríkja. Þingið sækja fyrir hönd Alþingis Þuríður Backman, formaður Íslandsdeildar, Ólöf Nordal og Sigmundur Ernir Rúnarsson. Eins og kunnugt er, eru þau Þuríður Bachman og Sigmundur Ernir þingmenn NA kjördæmis. Ólöf Nordal var á síðasta kjörtímabili þingmaður kjördæmisins.