Tveir norðlenskir sparisjóðir sameinast

Stofnfjáreigendur Sparisjóðs  Svarfdæla og Sparisjóðs Þórshafnar og nágrennis hafa samþykkt sameiningu sjóðanna og mun hinn sameinaði sparisjóður heita Sparisjóður Norðurlands.

Í tilkynningu frá sjóðnum segir að heildareignir hans verði um 6 milljarðar króna og eigið fé um 530 milljónir, þannig að eiginfjárhlutfall verður 16,3 %.

Höfuðstöðvar Sparisjóðs Norðurlands verða á Dalvík og mun hann hafa fimm starfsstöðvar á Dalvík, Þórshöfn, Kópaskeri, Hrísey og Raufarhöfn. Stjórn sjóðsins er skipuð Hólmgeiri Karlssyni, stjórnarformanni, Auði Hörn Freysdóttur, varaformanni, Sigurði Skúla Bergssyni, Jóni Inga Sveinssyni og Kristínu Kristjánsdóttur.

Jónas Mikael Pétursson, sparisjóðsstjóri Sparisjóðs Svarfdæla verður sparisjóðsstjóri,  en Ragnar Þorgeirsson, sparisjóðsstjóri Sparisjóðs Þórshafnar og nágrennis, mun gegna starfi útibússtjóra á Þórshöfn og jafntfram verða staðgengill sparisjóðsstjóra.  Starfsmenn Sparisjóðs Norðurlands eru nú 17.

Fjármálaeftirlitið hefur samþykkt samrunann.

 

Nýjast