Kvennalið KA/Þórs í handknattleik hefur náð samkomulagi við tvo leikmenn frá Rúmeníu um að spila með liðinu næsta vetur í N1-deildinni. Um er að ræða 28 ára markvörð og 24 ára örvhenta skyttu. Að sögn Erlings Kristjánssonar, formanns handknattleiksdeildar KA, er um ræða sterka handknattleiksmenn.
Við bindum miklar vonir við þessar stelpur en þær hafa báðar verið að spila í úrvalsdeildinni í sínu heimalandi, segir Erlingur. Ljóst er að Martha Hermannsdóttir verður ekki með KA/Þór fram að áramótum vegna barneigna en vonir eru bundar við að hún komi inn í liðið seinni part vetrarins.