Tryggvi Þór Herbertsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi ætlar að sækjast eftir fyrsta sæti á framboðslista flokksins, en hann var í öðru sæti listans við síðustu kosningar. Kjördæmisþing verður haldið á Skjólbrekku í Mývatnssveit á morgun og sunnudag. Á fundinum verður lögð fram tillaga stjórnar kjördæmisráðs um að prófkjör fari fram laugardaginn 26. janúar við val á framboðslista flokksins við þingkosningar í apríl. Kristján Þór Júlíusson þingmaður vill sömuleiðis fara fyrir listanum. Með þessari ákvörðun Tryggva Þórs er ljóst að þingmennirnir koma til með að berjast um leiðtogasætið í kjördæminu.