Trúi ekki öðru en að ríkisstjórnin standi við gefin loforð

Björn Snæbjörnsson Mynd: Karl Eskil
Björn Snæbjörnsson Mynd: Karl Eskil

„Satt best að segja eru samskipti ríkisstjórnarinnar og verkalýðshreyfingarinnar stirð um þessar mundir, okkar mat er að hún hafi ekki staðið við yfirlýsingar sem gefnar voru um kjaramál. Á næstu mánuðum verður farið sérstaklega yfir forsendur gildandi kjarasamnings og í janúar kemur í ljós hvort núverandi samningur verður látinn standa,“ segir Björn Snæbjörnsson formaður Einingar-Iðju.

 

Sérstakri forsendunefnd ASÍ og SA er ætlað að fjalla um þróun kjara-, efnahags-, atvinnu-, og félagsmála á samningstímanum. Í byrjun næsta árs á nefndin að fjalla um tímabilið frá 1. febrúar á þessu ári til ársloka. Samningurinn heldur gildi sínu til ársloka 2014 hafi forsendur staðist. „Eins og staðan er í dag virðist kaupmátturinn standast, gengi íslensku krónunnar er veikari en gert er ráð fyrir og verðbólgan er of mikil, þetta verður skoðað og metið á næstu mánuðum. Verði samningnum sagt upp detta út þær kauphækkanir sem kveðið er á um, þannig að það þarf að leggja þetta allt á vogarskálarnar þegar dæmið er reiknað út í heild sinni.“

Björn segir að ríkisstjórnin hafi meðal annars lofað að hækka á næsta ári atvinnuleysisbætur og almannatryggingar.

„Samkvæmt fjárlagafrumvarpi fyrir næsta ár er gert ráð fyrir að atvinnuleysisbæturnar hækki aðeins um rúmar  5000 krónur á mánuði, ríkisstjórnin hafði hins vegar lofað að hækka bæturnar um 11.000 krónur. Ég trúi ekki öðru en að ríkisstjórn standi við gefin fyrirheit. Síðan nefni ég líka endurgreiðslur ríkisins vegna hráefnisskorts í fiskvinnslu. Í fjárlagafrumvarpinu kemur fram að ekki á að setja krónu í slíkar endurgreiðslur. Þetta skapar eðlilega óöryggi meðal starfsfólks í greininni.“

Björn segir að í nóvember og desember verði væntanlega fundað með trúnaðarfólki Einingar-Iðju, þar sem farið verði yfir alla liði kjarasamningsins. „Orð skulu standa, ég hreinlega trúi ekki öðru en að ríkisstjórnin sjái að sér og standi við gefin fyrirheit.“

karleskil@vikudagur.is

Nýjast