Frá bankahruninu hefur íslenskt efnahagslíf átt undir högg að sækja. Sem er vitaskuld eðlilegt því áfallið var mikið, bæði fyrir heimili og fyrirtæki. Þó svo að samfélagið hafi ekki náð vopnum sínum til fulls á nýjan leik hefur mikið áunnist. En því miður eru þó enn víða brestir í ákveðnum þáttum atvinnulífsins. Það er því verk að vinna, skrifar Ármann Sigurðsson, sem tekur þátt í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins á Akureyri.