Traust atvinnulíf er grunnurinn

Ármann Sigurðsson
Ármann Sigurðsson

Frá bankahruninu hefur íslenskt efnahagslíf átt undir högg að sækja. Sem er vitaskuld eðlilegt því áfallið var mikið, bæði fyrir heimili og fyrirtæki. Þó svo að samfélagið hafi ekki náð vopnum sínum til fulls á nýjan leik hefur mikið áunnist. En því miður eru þó enn víða brestir í ákveðnum þáttum atvinnulífsins. Það er því verk að vinna.


Atvinnulíf hvers samfélags er grunnstoðin og hún þarf að vera traust og þess verðug að byggja ofan á. Stundum finnst mér að mikilvægi trausts atvinnulífs gleymist í þjóðfélagsumræðunni.
Ég hef ákveðið að gefa kost á mér í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins á Akureyri nk. laugardag, 8. febrúar, fyrir bæjarstjórnarkosningarnar næsta vor og leita eftir stuðningi í 5.-6. sæti listans. Ég hef lengi haft áhuga á stjórnmálum en ekki verið þar í fremstu víglínu. Ég hef hins vegar áhuga á að beita mér og leggja góðum málum lið og því gef ég kost á mér nú. Allan minn starfsaldur hef ég verið sjómaður og frá því ég fluttist til Akureyrar árið 1992 hef ég verið bátsmaður, háseti og 2. stýrimaður á skipum Samherja.

Atvinnumál eru mér hugleikin, því eins og að framan greinir eru þau einn af mikilvægustu þáttum í velferð samfélagsins. Atvinnulífið hér á Akureyri er fjölbreytt en til þess að standa undir frekari vexti og velferð svæðisins er fyrirsjáanlegt að á næstu árum þarf að skapa mörg ný atvinnutækifæri. Við höfum vissulega öflug fyrirtæki í t.d. sjávarútvegi, iðnaði og þjónustu og á þessum sviðum eru sóknarfæri til frekari vaxtar. Ferðaþjónustan hefur verið að eflast á Akureyri og það skiptir okkur öll miklu máli. Út frá spám um áframhaldandi fjölgun erlendra ferðamanna er þess að vænta að þessi þróun haldi áfram. Liður í eflingu verslunar og þjónustu í bænum er áframhaldandi uppbygging ferðaþjónustunnar. Hún er einn af okkar mikilvægustu vaxtarbroddum.
Annar áhugaverður möguleiki til uppbyggingar og vaxtar er höfn á Dysnesi, fimmtán kílómetrum norðan Akureyrar. Nú þegar liggja fyrir stórhuga hugmyndir um Dysneshöfn til að þjóna vaxandi umsvifum á norðurslóðum. Hér er tvímælalaust um að ræða vænlegan vaxtarbrodd sem þarf að fylgja vel eftir.

Almennt má segja að í atvinnumálunum þurfum við að vera vel vakandi fyrir nýjum tækifærum um leið og við þurfum að hlúa vel að þeirri atvinnustarfsemi sem fyrir er. Í því sambandi má ekki gleyma metnaðarfullri heilbrigðisþjónustu og þeim öflugu skólum á grunn-, framhalds- og háskólastigi sem bærinn státar af.

Akureyri er eftirsóknarverður bær til búsetu og hann hefur margt fram að færa fyrir íbúana. Hér er fjölskrúðugt menningarlíf og aðstaða til íþrótta og útivistar fyrir alla aldurshópa er til fyrirmyndar.
Í stöðugu umróti samfélagsins þarf að vera vel á verði. Verkefnið er að halda vel utanum það sem hefur áunnist jafnframt því að sækja fram og nýta öll þau sóknarfæri sem gefast. Akureyri hefur alla möguleika til frekari vaxtar ef rétt er á málum haldið. Ég er tilbúinn að leggja mín lóð á vogarskálarnar til þess að stuðla að því.

 Ármann Sigurðsson.

Höfundur er sjómaður og þátttakandi í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins á Akureyri 8. febrúar nk.

Nýjast