Tónlistarveisla um jólin

Ásgeir Trausti.
Ásgeir Trausti.

Glæsileg dagskrá verður á Græna Hattinum yfir hátíðirnar og tíu tónleikar í boði. Jón Jónsson ríður á vaðið í kvöld, föstudag,  kl. 22.00. Á laugardagskvöldið verður hljómsveitin Hjaltalín með tvenna útgáfutónleika kl. 20:00 og 23:00. Þriðja plata hljómsveitarinnar, Enter 4, kom eins og þruma úr heiðskýru lofti út í haust. Þrjú ár eru síðan síðasta plata Hjaltalín, Terminal, kom út ef undan er skilin Alpanon, sem innihélt tónleika Hjaltalín og Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Terminal hlaut einróma lof gagnrýnenda, bæði hér heima og erlendis.

Á endanum seldist platan í hátt í tíu þúsund eintökum á Íslandi og var valin sú besta á Íslensku tónlistarverðlaunum. Hjaltalín var einnig valin einn af nýliðum ársins 2010 af hinu virta tónlistartímariti, Clash Magazine.

Það hefur hins vegar lítið farið fyrir hljómsveitinni undanfarið, meðlimir sveitarinnar hafa ýmist verið uppteknir við nám erlendis, flugkennslu, framleiðslu á kvikmyndum eða við önnur tónlistartengd verkefni. 

Hvanndalsbræður

Á milli jóla og nýárs verða tónleikar öll kvöldin og hefst gleðin strax á annan í jólum með árlegum jólatónleikum Hvanndalsbræðra. Fimmtudaginn 27. desember spilar hljómsveitin Brother Grass og kynnir m.a. nýja frábæra jólaplötu, ásamt öðru efni sem þau hafa sent frá sér.

Ásgeir Trausti

Föstudaginn 28. desember er það ungstirnið Ásgeir Trausti ásamt hljómsveit sinni og Moses Hightowersem sem flytja efni af sínum metsöluplötum og eru tvennir tónleikar það kvöld. Einnig mun Ásgeir Trausti vera með unglingatónleika á laugardeginum 29. desember kl. 15.00.

Á laugardagskvöldið mun diskódúettinn Þú og Ég flytja öll sín vinsælustu lög.

Moses Hightower leikur undir hjá þeim Helgu Möller og Jóhann Helgason, auk þess sem Moses Hightower flytja efni af sínum metsöluplötum „Búum til börn“ og „Önnur Mósebók".

Tónleikarnir hefjast kl. 22.00. Árið endar svo að venju með tónleikum Helga og Hljóðfæraleikurunum en þeir hafa síðustu ár endað tónleikahaldið á Græna Hattinum með stæl.

 

Nýjast