Fjórtán manna hópur nemenda Tónlistarskóla Akureyrar er e þessa dagana í suður Noregi, til að taka þátt í listahátíð sem nefnist Stenbrudduke. Miklar og strangar æfingar standa yfir en hápunkturinn verður á föstudagskvöld þegar sýningin Urðarbrunnur verður frumsýnd. Verkið fjallar um stöðu konunnar í gegnum aldirnar og skapanornirnar þrjár, Urður, Verðandi og Skuld spinna örlagaþráð sýningarinnar. Þátttakendur eru frá Íslandi, Noregi og Danmörku og eru um 90 talsins. Íslenski hópurinn samanstendur af hljóðfæraleikurum, söngvurum, dönsurum og fjöllistafólki á aldrinum 16-26 ára. Verkið er sett upp í stóru útileikhúsi sem nefnist Fjæreheja og er staðsett stutt frá Kristiansand.