Tónleikarnir verða 25 mínútna langir en kórinn syngur tvær efnisskrár til skiptis. Aðgöngumiði í einni kirkju gildir í allar sem eftir eru og fólk getur því heyrt alla efnisskrána með því að mæta í tvær kirkjur eða fleiri. Sungin verða alþekkt kórlög í bland við lög frá ýmsum löndum, ný og gömul.Tónleikarnir verða haldnir á laugardaginn:
13.00 Laufáskirkja
14.00 Svalbarðskirkja
15.00 Kaupangskirkja
16.00 Munkaþverárkirkja
17.00 Minjasafnskirkjan
18.00 Lögmannshlíðarkirkja
19.00 Möðruvallaklausturskirkja
20.00 Stærra-Árskógskirkja
21.00 Vallakirkja
22.00 Ólafsfjarðarkirkja
Ekki hafa fundist heimildir um að þetta hafi verið gert áður hér á landi og þótt víðar væri leitað
Með þessu uppátæki fagnar Hymnodia tíu ára afmæli kórsins en safnar líka aurum til að gefa út jólaplötu sem kemur út í haust.