Tónleikar Hynmodiu: 10 – 10 – 10

Hymnodia/ljósm: Þórhallur Jónsson
Hymnodia/ljósm: Þórhallur Jónsson

Tónleikarnir verða 25 mínútna langir en kórinn syngur tvær efnisskrár til skiptis. Aðgöngu­miði í einni kirkju gildir í allar sem eftir eru og fólk getur því heyrt alla efnisskrána með því að mæta í tvær kirkjur eða fleiri. Sungin verða alþekkt kórlög í bland við lög frá ýmsum löndum, ný og gömul.Tónleikarnir verða haldnir á laugardaginn: 

13.00 Laufáskirkja

14.00 Svalbarðskirkja

15.00 Kaupangskirkja

16.00 Munkaþverárkirkja

17.00 Minjasafnskirkjan

18.00 Lögmannshlíðarkirkja

19.00 Möðruvallaklausturskirkja

20.00 Stærra-Árskógskirkja

21.00 Vallakirkja

22.00 Ólafsfjarðarkirkja

 

Ekki hafa fundist heimildir um að þetta hafi verið gert áður hér á landi og þótt víðar væri leitað

 

Með þessu uppátæki fagnar Hymnodia tíu ára afmæli kórsins en safnar líka aurum til að gefa út jólaplötu sem kemur út í haust.

Nýjast