Haustmóti Skákfélags Akureyrar Arionbankamótinu lauk um síðustu helgi. Keppendur voru alls tólf talsins og tefldu sjö umferðir eftir svissnesku kerfi. Mótið var venju fremur jafnt og tvísýnt og lauk með sigri Tómasar Veigars Sigurðarsonar, sem fékk 5.5 vinninga í sjö skákum. Sigurður Eiríksson, Sigurður Arnarson og Smári Ólafsson hlutu fimm vinninga.
Í síðustu umferð leit um tíma út fyrir að fjórir keppendur yrðu efstir og jafnir, uns Tómas náði að knýja fram vinning í skák sinni við Sveinbjörn Sigurðsson. Þess má geta að tvennir feðgar tóku þátt í baráttunni um meistaratitil félagsins í þetta sinn og urðu synirnir föðurbetrungar í báðum tilvikum, Tómas fyrir ofan Sigurð Eiríksson og Smári fyrir ofan Ólaf Kristjánsson, sem nýlega var kjörinn heiðursfélagi Skákfélagsins.Ólafur hefur verið í forystusveit akureyrskra skákmanna í yfir hálfa öld.
Opið hús verður hjá félaginu á fimmtudagskvöld, næsta sunnudag verður svo hausthraðskákmót. Þar verður teflt um meistaratitil félagsins í hraðskák. Taflið hefst kl. 13 í Skákheimilinu í Íþróttahöllinni og er öllum heimil þátttaka.
Við setningu á Mærudögum í gærkvöldi heiðraði forseti Íslands Halla Tómasdóttir, fyrir hönd Norðurþings, Frímann Sveinsson en hann var útnefndur bæjarlistamaður sveitarfélagsins.
Bjarni Þór Ævarsson, er ungur Akureyringur, matreiðslumeistari og stofnandi AllergyID — stafræns ofnæmiskorts sem hjálpar fólki með fæðuofnæmi að miðla ofnæmi sínu yfir tungumálahindranir en oft og tíðum getur verið snúið að koma til skila sé fæðuofnæmi að angra fólk.
21-28 til spanar til að leiða
Endurminning - Lokatónleikar 40 ára afmælishátíðar Sumartónleika í Akureyrarkirkju Andrew J. Yang leikur úrval píanóverka og frumflytur nýtt verk úr eigin smiðju.
Tónlistarhátíðin Kveldúlfur fer fram á Hjalteyri laugardaginn 15. ágúst 2026, þar sem fjölbreyttur hópur íslensks tónlistarfólks kemur fram í einstöku umhverfi við Eyjafjörð.
Vegna Mærudaga á Húsavík helgina 24.-26. júlí þarf að loka götum á hafnasvæðinu sem hér segir:
Frá föstudeginum 25. júlí kl. 12 til sunnudagsins 27. júlí kl. 7, á Hafnarstétt, frá Naustagarði að Fiskifjöru
Í tilkynningu sem lögreglan á Norðurlandi eystra sendi frá sér í nótt kemur fram að stúlkan sem leitað var í gærkvöldi og fram á nótt sé fundin heil á húfi.
Mærudagar hefjast formlega á morgun fimmtudag og eins og vant er verður margt spennandi í boði og ér óhætt að fullyrða að allir ættu að getað fundið eitthvað fyrir sinn snúð