Tjörneshreppur er skattaparadís Norðurlands

Minjasafnið á Mánárbakka er í Tjörneshreppi
Minjasafnið á Mánárbakka er í Tjörneshreppi

Sautján sveitarfélög á Norðurlandi vestra og Norðurlandi eystra leggja á hámarksútsvar á þessu ári, 14,52 %. Sveitarfélögin geta samkvæmt lögum ákveðið útsvarshlutfall á bilinu 12,44% til 14,52%. Af 74 sveitarfélögum landsins  leggja 58 á hámarksútsvar og tvö leggja á lágmarksútsvar.

Ef norðlensku sveitarfélögin eru skoðuð, kemur í ljós að þrjú þeirra leggja ekki á hámarksútsvar. Í Fjallabyggð er hlutfallið 14,48 % og einnig í Grýtubakkahreppi. Í Tjörneshreppi er útsvarið hins vegar lægst, eða 14,09 %.

 

Nýjast