Þetta voru nokkrir strákar sem voru að djöflast hérna klukkutímum saman í síðustu viku og keyrðu yfir gróðurinn á snjósleða eins og ekkert væri sjálfsagðara, segir Gylfi Sigurðsson bóndi á Ásláksstöðum á Akureyri.
Hann segir ekki ljóst um hversu mikið tjón sé að ræða. Það kemur í ljós í vor þegar snjórinn fer að sjatna en það er ljóst að þetta geta verið talsverðar skemmdir.
Gylfi segist vita hverjir voru að verki og að faðir eins drengjanna hafi hringt í sig og beðist afsökunar.
Nánar um málið í prentútgáfu Vikudags