Tíu prósent nemenda til sálfræðings

Ljósm/Hörður Geirsson
Ljósm/Hörður Geirsson

Rúmlega 10% nemenda nýttu sér sálfræðiþjónustu við VMA á liðnu skólaári. Þetta kemur fram í ársskýrslu Hjalta Jónssonar sálfræðings við skólann en í vetur var í fyrsta sinn boðið upp á slíka þjónustu í skólanum.

Í lok haustannar höfðu 63 nemendur farið í alls 152 viðtöl en á vorönninni fóru 86 nemendur í 219 viðtöl. Af þeim 137 nemendum sem leituðu sér aðstoðar voru 77 nemendur með lögheimili á Akureyri og nærsveitum.

„Ljóst er á þessum fjölda að þörf er fyrir slíka þjónustu. Það að sálfræðiþjónusta fari fram innan veggja skólans færir þjónustuna nær nemendum, minnkar skömm og fordóma gagnvart þeim sem þurfa á sálfræðiaðstoð að halda,“ segir í skýrslunni.

throstur@vikudagur.is

Nýjast