Kristján Þór Júlíusson þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi er fyrsti flutningsmaður þingsályktunartillögunnar um heilsársveg um Kjöl. Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að kanna þjóðhagslega hagkvæmni þess að leggja heilsársveg um Kjöl. Við það skal miðað að þessi framkvæmd sé öll eða að hluta unnin sem einkaframkvæmd og að kostnaður við hana greiðist með veggjöldum eftir því sem eðlilegt er. Jafnframt verði gerð forkönnun á umhverfisáhrifum og könnuð samfélagsleg áhrif framkvæmdarinnar, m.a. á atvinnustarfsemi og byggðir landsins.
Ríkisstjórnin skili Alþingi skýrslu um málið fyrir 1. apríl 2013.
Hækkandi eldsneytisverð, umhverfisþættir og öryggismál auk sívaxandi þunga ferðamannaumferðar um Kjalveg kalla á að þetta verkefni verði unnið með það að markmiði að tekin verði upplýst ákvörðun um framgang þess.
-Flest bendir til að veglagningin um Kjöl yrði ein arðsamasta samgönguframkvæmd sem mögulegt er að ráðast í á Íslandi. Ekki verður fram hjá því litið að stytting akstursleiðar milli Norður- og Suðurlands um 140 km hefði umtalsverða þýðingu fyrir atvinnu og samfélag í þessum landshlutum og fyrir þá mörg hundruð einstaklinga sem dag hvern fara þarna um á leið sinni milli landshluta, segir í tillögunni.