Tilbúinn til að setjast á þing

Hjálmar Bogi Hafliðason
Hjálmar Bogi Hafliðason

„Við getum ekki annað en verið sátt við þær kannanir sem gerðar hafa verið að undanförnu, almenningur kann vel að meta okkar stefnuskrá, enda er hún skýr og raunsæ,“ segir Hjálmar Bogi Hafliðason kennari á Húsavík og bæjarfulltrúi í Norðurþingi. Hann skipar fimmta sæti framboðslista Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi. Samkvæmt nýjasta Þjóðarpúlsi Gallups fengi Framsóknarflokkurinn fimm þingmenn í NA-kjördæmi.

Tilbúinn

 „Ég svara að sjálfsögðu kallinu, verði þetta niðurstaðan. Ég er tilbúinn til að setjast á þing, en minni enn og aftur á að þetta er bara skoðanakönnun, sem vissulega segir okkur að Framsóknarflokkurinn er á góðri siglingu,“ segir Hjálmar Bogi Hafliðason.

 

karleskil@vikudagur.is

Nýjast