Tilboð um sameiningu berast reglulega

„Við getum sannarlega hugsað betur um hinn einstaka félagsmann en stóru félögin. Félagið hefur verið vel rekið og er því fjárhagslega nokkuð öflugt. Þrátt fyrir það verðum við að gæta þess að vera stöðugt á verði og hugsa um hvað megi betur fara. Mæting á fundi er almennt góð og félagarnir eru ófeimnir við að segja álit sitt á starfseminni, segir Jóhann Sigurðsson, formaður Félags málmiðnaðarmanna, Akureyri.“

Ókosturinn?

„Stóru félögin eiga það til að vilja sniðganga þau litlu og ráða ferðinni í sameiginlegum málum. Eftir að hafa verið formaður í um eitt ár nefni ég þetta atriði sem helsta ókostinn. Stóru félögin sjá oft á tíðum ekki hversu rík samstaða er innan litlu félaganna.“

Berast ykkur reglulega tilboð um sameiningu?

Já, já, slík erindi eru fjölmörg. Við þökkum hins vegar alltaf fyrir gott boð og bendum á í leiðinni að sameining við önnur félög sé ekki sérstaklega á dagskrá. Þetta er góð eining, eins og sagt er á fagmáli. Við erum sem sagt lítið félag með stórt hjarta og teljum okkur eiga fullt erindi í hvaða mál sem er, enda má segja vagga málmiðnaðar sé á Akureyri. Við teljum framtíðina bjarta, iðnaðurinn á eftir að eflast á Eyjafjarðarsvæðinu á næstu árum og ég bendi á í því sambandi ýmis stór verkefni sem eru í pípunum,“ segir J'ohann.

karleskil@vikudagur.is

Nýjast