Tilboð langt undir kostnaðaráætlun

Metangas hreinsistöð
Metangas hreinsistöð

Þrjú tilboð bárust Norðurorku í lagningu gaslagna fyrir fyrirhugaða metanstöð fyrirtækisins, kostnaðaráætlun hönnuða gerði ráð fyrir að verkið kostaði kr. 28.9 milljónir króna.

 Lægsta tilboð barst frá Vélaleigu Halldórs Baldurssonar, 11, 5 milljónir króna, sem er 40% af kostnaðaráætlun.

Verktakafyrirtækið GV gröfur býst til að vinna verkið fyrir 13,8 milljónir og G.Hjálmarsson fyrir 15 milljónir króna. Verkið felst í lagningu hauggaslagnar frá gamla urðunarstaðnum á Glerárdal, að lóð fyrir hreinsistöð við heitavatnstank sunnan Súluvegar og lagningu metangaslagnar frá heitavatnstanki að fyrirhugaðri lóð áfyllistöðvar við Miðhúsabraut.

Samhliða lagningu gaslagna skal leggja jarðstrengi frá tengistað vestan við hitaveitutank að malbikunarstöð og heitavatnsdæluhúsi, ofan við Súluveg auk ídráttarlagna.

karleskil@vikudagur.is

Nýjast