Um 5000 manns eru komnir til Akureyrar þar sem Söngkeppni framhaldsskólanna fer fram um helgina. Að sögn aðstandenda hefur keppnin aldrei verið jafn stór í sniðum og í ár, en keppendur koma frá 30 framhaldsskólum. Undankeppnin fer fram í kvöld, föstudag, og sjálf úrslitin annað kvöld. Búist er við fullu húsi bæði kvöldin í Íþróttahöllinni á Akureyri þar sem keppnin fer fram. Kynnar verða Hraðfréttamennirnir Benedikt Valsson og Fannar Sveinsson.