Þungur rekstur hjá MA

Frá útskrift MA í gær.
Frá útskrift MA í gær.

Menntaskólanum á Akureyri var slitið í 134. sinn  í gær þar sem 179 nemendur útskrifuðust. Jón Már Héðinsson, skólameistari, sagði m.a. í ræðu sinni að hann fagnaði því að samingar um laun kennara gætu aukið áhuga á kennarastarfi og væru upphafið að því að losa skólana úr fjötrum niðurskurðar. „Starfsfólk hefur unnið við afar erfiðar aðstæður, en samt verið að vinna að því marki að draga úr brottfalli," sagði Jón Már, sem vék einnig að þungum rekstri skólans í ræðunni. 

"Rekstur skólans hefur verið afar erfiður, bóknámsskólar eins og MA hafi verið sveltir umfram aðra skóla svo legið hafi við lokun. Hins vegar hefur menntamálaráðherra, Illugi Gunnarsson, lýst yfir skilningi á erfiðri rekstrarstöðu bóknámsskóla og vonandi verður hlutur þeirra réttur,“ sagði Jón Már.

 

Nýjast