Þróttarar skelltu Þórsurum

Sveinn Elías Jónsson (t.v.) fyrirliði Þórs fékk að líta rauða spjaldið í dag.
Sveinn Elías Jónsson (t.v.) fyrirliði Þórs fékk að líta rauða spjaldið í dag.

Þróttur Reykjavík hafði betur gegn Þór, 1-0, á heimavelli sínum í dag í 1. deild karla í knattspyrnu. Eina mark leiksins koma á 20. mínútu og það skoraði Helgi Pétur Magnússon úr vítaspyrnu. Þrjú rauð spjöld fóru á loft en Hallur Hallsson og Davíð Sigurðsson voru reknir af velli hjá liði Þróttar en Sveinn Elías Jónsson hjá Þór. Eftir leikinn í dag hafa Þórsarar sautján stig í fimmta sæti en Þróttur kom sér úr fallsæti og upp í það sjöunda með fimmtán stig. Þórsarar eiga hins vegar tvo leiki til góða.

Nýjast