Harðasti skjálftinn reið yfir klukkan 7:57 og mældist 4,3 stig. Skömmu fyrir klukkan átta reið annar skálfti yfir sem mældist 3 stig. Á níunda tímanum mældist svo skjálfti upp á 4 stig. Fólk víða á Norðurlandi varð vart við skjálftana, til dæmis á Siglufirði og í Ólafsfirði. Nokkrir minni skjálftar hafa fylgt í kjölfarið. Hægt er að fylgjast með skjálftavirkninni á vef Veðurstofu Íslands.
karleskil@vikudagur.is