Þór/KA Íslandsmeistari!

Þór/KA er Íslandsmeistari kvenna í knattspyrnu eftir 9-0 sigur gegn Selfossi á heimavelli í kvöld í næstsíðustu umferð Pepsi- deildarinnar. Þetta er fyrsti titillinn í sögu félagsins og því stór stund á Þórsvelli í kvöld. Sandra María Jessen og Katrín Ásbjörnsdóttir skoruðu sitthvora þrennuna fyrir Þór/KA og þær Tahnai Annis og Rebecca Johnson eitt mark hvor, en eitt markanna var sjálfsmark gestanna.

Þór/KA hefur 42 stig á toppi deildarinnar þegar ein umferð er eftir, en Stjarnan hefur 38 stig í öðru sæti. Lokaumferð deildarinnar fer fram á laugardaginn kemur þar sem nýkrýndir Íslandsmeistarar Þór/KA sækja Fylki heim.

Nýjast