Þór tryggði sér sæti í efstu deild

Þór tryggði sér sæti í Pepsi-deild karla í knattspyrnu næsta sumar með 3-1 sigri gegn Víkingi Reykjavík í dag í 1. deild karla. Sveinn Elías Jónsson, Orri Freyr Hjaltalín og Ármann Pétur Ævarsson skoruðu mörk Þórs í leiknum en mark Víkings skoraði Sigurður Egill Lárusson. Þór hefur 41 stig á toppi deildarinnar og er sex stigum á undan Víkingi Ólafsvík sem er í öðru sæti og líklegasta liðið til að fylgja þeim upp í efstu deild.

Nýjast