Þór felldi Hött-KA endar í fjórða sæti

Sigurður Marinó Kristjánsson skoraði mark Þórs í dag.
Sigurður Marinó Kristjánsson skoraði mark Þórs í dag.

Þór lagði Hött að velli, 1-0, er liðin mættust á Þórsvelli í dag í lokaumferð 1. deildar karla í knattspyrnu. Sigurður Marinó Kristjánsson skoraði eina mark leiksins á 18. mínútu. Sigur Þórs gerði það að verkum að Höttur féll, ásamt ÍR. Þór hafnaði í efsta sæti deildarinnar með 50 stig. KA endaði í fjórða sæti deildarinnar með 33 stig en liðið gerði markalaust jafntefli við BÍ/Bolungarvík á útivelli.

Nýjast