Þór á toppinn

Þór er komið á toppinn í 1. deild karla í knattspyrnu eftir 3-2 sigur gegn BÍ/Bolungarvík á heimavelli í kvöld. Gestirnir að vestan byrjuðu betur á Þórsvelli og Mark Tubæk kom þeim yfir eftir fimm mínútna leik en Chukwudi Chijindu jafnaði þremur mínútum síðar fyrir Þór. Ármann Pétur Ævarsson kom Þór í 2-1 í upphafi síðari hálfleiks og þannig stóðu leikar þangað til að fjórar mínútur voru til leiksloka er Jackson Möller jafnaði fyrir BÍ/Bolungarvík og virtist ætla að tryggja þeim jafntefli.

Aðeins tveimur mínútum síðar kom hins vegar sigurmarkið sem var heimamanna og þar var Ármann Pétur aftur á ferðinni er hann skallaði boltann í netið eftir aukaspyrnu og tryggði Þór mikilvæg þrjú stig.

Þórsarar hafa 29 stig á toppnum, stigi meira en Víkingar frá Ólafsvík sem er í öðru sæti og Þór á auk þess leik til góða.

Nýjast