Þokkaleg aflabgögð þegar gefur

„Siggi Gísla fór í fjóra róðra í vikunni og aflinn var samtals um 10 tonn. Fiskurinn fer á innanlandsmarkað,“ segir Jóhann Pétur Jóhannsson hjá útgerðarfélaginu Hvammi í Hrísey, en alls starfa um 20 manns hjá Hvammi.

„Það var bræla í síðustu viku og ekkert hægt að róa, þannig að það gengur á ýmsu. Aflinn hefur verið ágætur þegar viðrað hefur. Á þessum árstíma má alltaf búast við ekki sé hægt að róa alla daga.“

karleskil@vikudagur.is

Nýjast