Þjófnaður í Fjölsmiðjunni

Akureyri
Akureyri

Brotist var inn í gám í eigu Fjölsmiðjunnar á Akureyri og stolið þaðan dýrmætum tækjum. Meðal annars var stórri ryksugu stolið, djúphreinsivél, þrýstikút og tjöruhreinsidælu. Auk þess var tekið nokkuð af efnum til bílþvotta. Þetta kemur fram á fésbókarsíðu Fjölsmiðjunnar í dag og eru þeir sem veitt geta upplýsingar beðnir um að hafa samband í síma 414-9380. Fjölsmiðjan veitir 20.000 króna inneign fyrir upplýsingar sem leiða til fundar á þýfinu.

throstur@vikudagur.is

Nýjast