Menntamálaráðherra veitti í dag Þjóðlagasetri séra Bjarna Þorsteinssonar á Siglufirði sérstaka viðurkenningu fyrir stuðning við íslenska tungu. Þjóðlagasetur sr. Bjarna Þorsteinssonar var vígt 8. júlí 2006 og hefur allar götur síðan unnið ötullega að því að efla þennan menningararf sem tengist íslenskri tungu og orðmennt órofa böndum gegnum rímnastemmur og þjóðlög, segir í rökstuðningi ráðgjafanefndar.
Viðurkenningarhafi fær listaverk eftir Brynhildi Þorgeirsdóttur.
Gunnsteinn Ólafsson tók við viðurkenningunni fyrir hönd Þjóðlagasetursins.