Þjóðin í dauðafæri

Andrea J. Ólafsdóttir
Andrea J. Ólafsdóttir

Dögun – stjórnmálasamtök um réttlæti, sanngirni og lýðræði bjóða fram í öllum kjördæmum í alþingiskosningum í vor. Aðaláhersla okkar er á lýðræðisleg vinnubrögð og fyrir komandi kosningar setjum við þrjú mál á oddinn: Afnám verðtryggingar og leiðréttingar lána, nýja stjórnarskrá og uppstokkun á stjórn fiskveiða. Einnig viljum við lögfesta lágmarks framfærsluviðmið og endurskoða lífeyrissjóðskerfið.

Dögun hefur sérstöðu að því leiti skipulag okkar er flatt án formanns. Stefnumál Dögunar eru samþykkt á félagsfundum þar sem allir félagar hafa atkvæðarétt. Hjá Dögun er lýðræðið því ekki bara í orði heldur einnig á borði.

Peningaöfl stýra ekki ferðinni

Í rannsóknarskýrslu Alþingis kemur fram að „eitt augljósasta tæki viðskiptalífsins til að hafa áhrif á stjórnmálamenn eru bein fjárframlög, bæði til stjórnmálaflokka og einstakra stjórnmálamanna.“ Það samrýmist því ekki l vel hugmyndinni um lýðræði að stjórnmál séu fjármögnuð af fyrirtækjum. Hvað er að marka stjórnmálaafl sem fjármagnað er af fjársterkum aðila eða fyrirtækjum, jafnvel af sjávarútvegsrisa? Er slíkt afl í þjónustu við almenning eða fjármögnunaraðilann?

Dögun hefur skýrar reglur að þessu leyti, við viljum skera á milli iðskiptalífs og stjórnmála og banna framlög lögaðila til stjórnmálaflokka og stjórnmálamanna. Einnig viljum við setja reglur sem draga úr áhættu á því að peningaöfl hafi bein áhrif á þjóðaratkvæðagreiðslur og íbúakosningar. Með þessum hætti er hægt að koma í veg fyrir spillingu. Peningavald er andstæða lýðræðis.

Við hvetjum alla kjósendur til að íhuga vel hvaða öfl liggja að baki stjórnmálaflokkanna, eru þau öfl að hugsa um velferð almennings eða eigin hag?

Málefnaleg sérstaða

Sérstaða Dögunar liggur í því að við leggjum bæði áherslu á leiðréttingar lána heimilanna og afnám verðtryggingar, sem 80% þjóðarinnar vill - en erum að auki komin lengra í útfærslu á framtíðarlánakerfi með 5-6% vaxtaþaki og breyttu húsnæðiskerfi með virku markaðsaðhaldi. Við viljum nýja stjórnarskrá og við viljum að auðlindirnar séu í þjóðareigu. Það þýðir að breyta verður kvótakerfinu og tryggja fólkinu arð af auðlindum sínum. Þannig sköpum við forsendur til skattalækkana. Þannig er okkar stefna í þessum stóru og brýnu hagsmunamálum, sem munu koma til afgreiðslu á næstu árum. Dögun er því sammála meirihluta þjóðarinnar.

Þjóðin er í dauðafæri að ná fram langþráðu réttlæti fyrir heimilin og lýðræðið – veljið ykkur nýtt afl sem setur heimilin í 1. sæti og tryggið endurnýjun inn á Alþingi í vor. Klúðrum ekki því tækifæri sem okkur er gefið. Nóg er úrvalið og Dögun er þar öflugur valkostur, kynnið ykkur XT.is

 

Andrea J. Ólafsdóttir og Gísli Tryggvason oddviti Dögunar í Suðurkjördæmi og

 

 

Nýjast