Þjóðhátíðardagurinn 17. júní á Akureyri

Veðrið lék við hvurn sinn fingur í fyrra á þjóðhátíðardaginn. Að þessu sinni verður ekki jafn hlýtt …
Veðrið lék við hvurn sinn fingur í fyrra á þjóðhátíðardaginn. Að þessu sinni verður ekki jafn hlýtt og jafnvel má búast við talsverðri rigningu. Mynd: Ragnar Hólm Ragnarsson

Þjóðhátíðardagskrá verður 17. júní frá kl. 13-17 í Lystigarðinum, á MA-túninu og í næsta nágrenni þess.

Blómabíllinn leggur af stað frá Naustaskóla kl. 11.00, keyrir í gegnum íbúðahverfin, niður Listagilið, eftir Strandgötunni og víðar þar sem ómur berst frá palli bílsins með viðeigandi 17. júní lögum. Hlustum eftir lögunum og vinkum blómabílnum okkar. Akstursleið blómabílsins er að finna HÉR!

Skrúðganga Skátafélagsins Klakks og Lúðrasveitar Akureyrar leggur af stað frá Gamla húsmæðraskólanum við Þórunnarstræti kl. 12.30 og heldur suður í Lystigarð þar sem formleg hátíðarhöld fara fram. Mætum öll í skrúðgönguna!

Hátíðardagskrá í Lystigarðinum
13.00-14.00

  • Fánahylling
  • Lúðrasveit Akureyrar undir stjórn Sóleyjar Bjarkar Einarsdóttur
  • Bænagjörð og blessun: Eydís Ösp Eyþórsdóttir, djákni í Glerárkirkju
  • Kór Glerárkirkju undir stjórn Valmars Väljaots
  • Fjallkonan, Kolfinna Líndal Arnarsdóttir nýstúdent frá VMA
  • Ávarp bæjarstjóra: Ásthildur Sturludóttir

Fjölskylduskemmtun í Lystigarðinum
14.00-17.00

  • 14.00 Eik Haralds & Guðjón
  • 14.20 Dansatriði frá Steps Dancecenter
  • 14.30 Tinna & Daníel Andri
  • 15.00 Drinni & The Dangerous Thoughts
  • 15.30 Dansatriði frá DSA Listdansskóla Akureyrar
  • 15.40 Hvolpasveitin
  • 16.20 Jónína Björt & Ívar Helga

Afþreying á MA-túni og víðar
14.00-17.00

  • Hoppukastalar
  • Andlitsmálning kl. 14.00-16.00
  • Frisbígolf með Frisbígolffélagi Akureyrar í Stefánslundi norðan við MA
  • Götukörfubolti með Körfuknattleiksdeild Þórs við íþróttahús MA
  • Hópleikir fyrir börn á öllum aldri á túninu vestan við heimavist MA & VMA
  • Sölutjald frá Skátunum
  • Skátatívolí
  • Matarvagnar

Fögnum þjóðhátíð saman! Fjölmennum í skrúðgönguna!

Nýjast