Það er alltaf reitingur og ég held áfram í þessu meðan ég hef heilsu til. Ég hef reyndar þurft að fara hægt í sakirnar undanfarin ár vegna hjartaáfalls. Þetta er slítandi starf og maður er aldrei í fríi, segir Skúli Viðar Lórenzson miðill á Akureyri. Skúli er mörgum kunnur en hann hefur starfað sem miðill frá árinu 1995. Vikudagur settist niður með Skúla.
Eftirspurnin eftir miðilsfundum kemur alltaf í bylgjum. Áhuginn fer mikið eftir því hvernig fólki líður hverju sinni. Ef mönnum líður illa af einhverjum ástæðum leitar það oft til miðla. Það var t.d. mikill áhugi eftir efnahagshrunið, þá áttu margir um sárt að binda og eiga enn. Á slíkum erfiðleikatímum vill fólk fá að vita hvort það séu ekki bjartari tímar framundan. En aftur á móti þegar vel gengur í þjóðfélaginu leitar fólk síður til okkar. Menn er misjafnlega sáttir eftir miðilsfundi og það er alveg skiljanlegt. Það er bara eins og með allt annað í lífinu. En ég segi alltaf við fólk sem kemur til mín að það koma ekki upplýsingar til þeirra um hvernig það eigi að lifa, heldur til að taka mið af. Við biðjum fyrir fólki og reynum þannig að hjálpa því að feta rétta braut.
Eru Akureyringar almennt trúaðir á störf miðla?
Já, það er mín upplifun og það er mikil gróska hérna á Akureyri í andlegum málefnum.
Hættur að fara á böll
Ég sé iðulega framliðna með fólki, hvort sem ég er staddur úti í bæ eða í veislum. Ég hafði gaman af því að fara á böll í gamla daga og dansa. En ég hef gert lítið af því undanfarin ár vegna þess að það er ekki gaman að vera innan um fólk sem notar mikið áfengi. Framliðnir eru oft á sveimi í kringum það og maður kærir sig ekkert endilega um að vera nálægt.
Nánar er rætt við Skúla í prentútgáfu Vikudags.