Það verður fjölbreytt dagskrá á Gæna hattinum um páskana. Í kvöld, fimmtudag, eru það Jónas Sig og Ritvélar framtíðarinnar sem spilar en hljómsveitin þykir ein kraftmesta tónleikaveit landsins. Plata Jónasar, Þar sem himin ber við haf, sem kom út seint á síðasta ári, fékk mjög góða dóma sem og viðtökur. Tónleikarnir hefjast kl. 22:00. Á föstudags- og laugardagskvöld er það stórsveitin Todmobile sem spilar fyrir gesti með þau Andreu Gylfadóttur, Eyþóri Inga Gunnlaugssyni og Þorvaldi Bjarna Þorvaldssyni í fararbroddi.
Farið verður yfir feril Todmobile og helstu lög sveitarinnar flutt, en hljómsveitin fagnar 25 ára afmæli í ár. Tónleikarnir á föstudeginum hefjast kl. 22:00 en tvennir tónleikar verða á laugardeginum; þeir fyrri kl. 20:00 en þeir seinni kl. 23:00.
Á páskadag eru það Magnús Sigmundsson og Jóhann Jóhannsson sem stíga á stokk en þeir félagar eiga meira en 40 ár feril að baki á tónlistarsviðinu. Magnús og Jóhann gáfu út plötu seint á síðasta ári, sem er af mörgum talin þeirra allra besta. Tónleikarnir hefjast kl. 22:00.