Þétt dagskrá um verslunarmannahelgina

Mynd: Þórhallur Jónsson.
Mynd: Þórhallur Jónsson.

Það verður nóg í boði fyrir gesti hátíðarinnar; Ein með öllu á Akureyri um verslunarmannahelgina en þétt dagskrá verður frá kvöldi fimmtudagsins 2. ágúst og fram á sunnudagskvöld. „Ég held ég geti fullyrt að engin hátíð á landinu verði með svo mikið sem einn fjórða af þeim dagskrárliðum sem við ætlum að bjóða upp á. Það verður brjálað að gera hérna um helgina,” segir Davíð Rúnar Gunnarsson einn af skipuleggjendum hátíðarinnar. Búist er fjölda manns til Akureyrar um helgina líkt og undanfarin ár.

Fastir liðir eins og Sparitónleikar við Samkomuhúsið, Dynheimaball og flugeldasýning verða á sínum stað og einnig verður bryddað upp á nýjungum. Þar má nefna dagskrárliðinn „Pabbar og pizzur”. Margir af helstu hljómsveitir og söngvarar þjóðarinnar munu ekki láta sig vanta á hátíðina og má nefna Sálina hans Jóns míns, Papana og Pál Óskar Hjálmtýsson.

Nánari dagskrá má finna á www.einmedollu.is.

Nýjast