Ég hef það gott í dag miðað við aðstæður og hef verið ótrúlega heppinn með allt það frábæra fagfólk sem hefur hugsað vel um mig frá því að slysið varð, segir Hallgrímur Friðrik Sigurðarson kokkur á Akureyri. Hallgrímur lenti í slæmu vélsleðaslysi á páskadag þegar hann var ásamt hópi manna á snjósleða í Bíldsárskarði í Eyjafirði. Hallgrímur er brotinn nánast á öllum vinstri helmingi líkamans eftir slysið; báðir fæturnir eru brotnir, vinstri handleggurinn og níu rifbein. Hallgrímur segist muna vel eftir slysinu.
Við vorum að keyra á sleðunum á fallegum og björtum degi á svæði sem ég hef farið um margoft áður. Einhverra hluta vegna keyrði ég fremstur og sá örla fyrir gloppu í snjónum. Mikil birta og snjóblinda orsökuðu það hins vegar að ég gerði mér ekki grein fyrir dýpt gloppunnar. Ég steyptist niður og skall á bakkanum. Þetta var eins og að keyra á vegg á 60 kílómetra hraða.
Þetta er aðeins brot úr viðtali við Hallgrím sem nálgast má í heild sinni í prentútgáfu Vikudags.