Á Norðurlandi vestra er ófært og stórhríð á Þverárfjall og á Siglufjarðarvegi, þæfingsfærð og stórhríð er á Öxnadalsheiði, annars eru hálkublettir og skafrenningur á flestum leiðum.
Á Norðausturlandi er ófært og stórhríð á Sandvíkurheiði, Hólaheiði, Hálsum og Hófaskarði en ófært og óveður á Mývatnsöræfum. Þæfingur og skafrenningur er á Möðrudalsöræfum, Grenivíkurvegi og Vopnafjarðarheiði, annars er hálka, snjóþekja og skafrenningur mjög víða. Ófært er á Dettifossvegi.