Það er ekki öll vitleysan eins

Með fullri virðingu fyrir þeim öllum, þá má sjá að flokkarnir nálgast skuldavandamál heimilinna og önnur stórmál með ærið misjöfnum hætti. Skoðum það aðeins

Einn gamall og gróinn

Einn hinna ágætu flokka vill afnema almenna verðtryggingu, halda í krónuna og í núverandi kvótakerfi. Hann vill 20% leiðréttingu á húsnæðislánunum, en hefur ekki greint fá því ennþá, að ég hef lesið eða heyrt, nákvæmlega hvenær eða hvernig það muni gerast eða hverja það muni þá eiga við. Hann segist vilja fjármagna aðgerðirnar með því að reyna að ná fé af vogunarsjóðunum, en ekki er skilgreint á hvaða forsendum semja eigi þá frá eða þá hvernig að ná megi einhverju með einhverju valdi. Augljós hætta er á að það muni ekki takast eins og væntingar þeirra standa til og að slíkar aðgerðir tækju langan tíma að verða að einhverjum veruleika, enda hafa þeir sagt að þetta eigi hugsanlega að geta gerst einhvern tíma á kjörtímabilinu? Þetta mun þá því nýtast þeim illa, sem að geta ekki beðið eftir  leiðréttingunni, auk þess sem að hún gengur allt of skammt fyrir þá. Hugsa þarf um hin stóru hrægammamál heildstætt við önnur efnahagsmál, en ekki svona einangrað. En ef að það þá tækist ná til baka einhverju fé af gömmunum, þá má spyrja sig hvers vegna ætti þá að eyða því í þessa niðurfærslu, þegar önnur lausn er til sem að kostar mjög lítið? Ættu peningarnir þá ekki frekar að renna til ríkissjóðs til þess að hægt væri að greiða niður skuldir, lækka skatta, hækka bætur o.s.frv. og fara í arðbæra atvinnuskapandi uppbyggingu fyrir land og þjóð? Finnst fólki þetta virkilega vera trúverðugar eða skynsamar hugmyndir, sem að gangi upp yfirleitt eða þá nógu tímanlega eða sannarlega fyrir það? Og svo er síðan ekki hægt annað að spyrja hvers vegna ekkert hafi verið gert í þessum efnum undanfarin ár á Alþingi?

Annar með langa sögu

 

Annar frægur flokkur vill halda í verðtrygguna, krónuna og óbreytt kvótakerfi. Hann vill lækka tekjuskatt hjá ótilgreindum hópi í um 5 ár sem lausnina fyrir skuldarana og að fólk skuli svo nota gjörið þið svo vel það sem eftir er af séreignasparnaði sínum ef einhver er, en að bankarnir muni halda sínu áfram. Það er reyndar svo að vandamálið er ekki skattamál heldur skuldamál. Lægri skattar á tekjulágt fólk munu taka mjög langan tíma að virka og það verður svo á kostnað ríkissjóðs og hins almenna skattgreiðnda. Á meðan munu lánin halda áfram að bólgna út vegna verðtryggingarinnar og fólkið litlu bættara. Og hvers vegna var ekkert gert undanfarin ár á þingi í þessum málum? Af hverju er allt í einu núna komið með hugmyndir, sem reyndar virka ekki né ganga upp, þegar að tugþúsundir hafa þjáðst allan tímann?

Sumir yngri, aðrir með misjafna sögu

Enginn annarra en væntanlega þó velmeinandi flokka, sem sumir eru meira og minna eins máls flokkar, hafa sett fram úthugsaðar eða skilgreindar og tímasettar aðgerðir hvernig á að leysa heimilin niður úr snörunni strax eins og þarf að gera. Flestir vilja halda í núverandi kvótakerfi og krónuna nema tveir eða kannke þrír eða fjórir, sem vilja ganga í ESB og reyna með því að taka einhvern tíma í framtíðinni upp evru, sem flestir aðrir eru sammála um að sé óraunhæf lausn fyrir skuldarana núna og muni ekki hjálpa okkur mikið síðar nema síður sé. Talað er háfleygt um skuldavandamál og greiðsluvandamál sem aðskilin vandamál, en sem væntalega ber að sama brunni fyrir þá, sem að eru í vandræðunum. Sumir tala um skattaaðgerðir s.s. vaxtabætur og ýmsar þess háttar millifærslur, sem að eru þá auðvitað á kostnað skattgreiðenda og reynslan sýnir að duga skammt. Sumir segja að ná eigi í eitthvað frá lánastofnunum, einhver skipti á milli lánardrotttna og skuldunauta, en ekki útfært hvað, hvernig eða hvænær. Margt er mjög almennt orðað eins og að stefnt skuli að, athugað o.s.frv. hitt og þetta, en  ekkert er þar, sem að hönd á festir eða er tímasett og hjálpar því fólki undir daglegum útburði sýslumanna hvorki mikið né fljótt samkvæmt ónákvæmum og órökstuddum hugmyndum þessara flokka. Hverju getur fólkið þá treyst? Það er ekki gott fyrir skulduga að vera stöðugt í óvissuni eða sífellt í sömu eða versnandi stöðu nema hvað? Það er auðvitað mjög mikill munur á einhverjum hugmyndum og loforðum og svo ákveðnum tímasettum aðgerðum.

Einn er harðákveðinn og beittur

Einn er þó flokkurinn, sem að fyrir löngu síðan hefur birt tímasettar og úthugsaðar aðgerðaáætlanir sínar, úrræði sem að hægt er að fara í um leið og hann fær til þess nægilegan styrk í kosningunum. Það er ekki hægt fyrir fólkið að bíða eftir einhverjum niðurstöðum dómstóla um lögmæti MiFID reglugerðarinnar frá 01.11.2007 og bíða svo eftir einhverju ótilgreindu eftir það, heldur verður í fyrsta lagi að setja tafarlaust á  neyðarlög um undanbragðalausa leiðréttingu allra verðtryggðra húsnæðis og námslána eftir þá dagsetningu, sem að mun mest verða um 45%+  og meira að segja leiðréttingu ólöglegrar ofgreiðslu lána fyrir þá, sem að voru búnir að gera upp eftir þann dag. Aðferðin er alþekkt og hefur verið og er notuð víða um heim með fullkomnum árangri og nefnist magnbundin íhlutun Seðlabankans. Það er alls ekki verið að finna upp hjólið á ný, þótt margir séu enn blindir fyrir rökréttum einfaldleika lausnarinnar, svo furðulegt sem að höfundi finnst það vera.  Hún kostar afar lítið og kemst strax á eða 17. júni n.k. ef að Hægri grænir fá að ráða og ekkert mun lenda á ríkissjóði. Í öðru lagi verður með heildstæðri hugsun og stefnu í efnahagsmálum, samhliða og samtímis leiðréttinginni, að framkvæma hina bráðnauðsynlegu upptöku nýrrar íslenskrar myntar, ríkisdals, sem að með tengingu við Bandaríkjadal skapar stöðugleika, lægri vexti og verðbólgu. Með ríkisdalnum og Icesave dómnum þarf heldur ekki að semja við hrægammana um eitt eða neitt, því við munum þá ráða ferð og geta sett þeim stólinn fyrir dyrnar með úrslitakostum okkar. Hægri grænir er einn með nýja stefnu í fiskveiðistjórnun með afnámi kvótakerfisins í núverandi mynd og nýju kerfi í staðinn, sem að leyfir m.a. frjálsar handfæra og aðrar botnfiskveiðar. Það er mikill munur á þessu og öllu hinu. Ef að kjósendur vilja að þessum lausnum verði komið á með festu fyrir sig og þjóðina strax og án málalenginga, þá verða þeir að setja X við G í kosningunum. Er það ekki að verða nokkuð ljóst? Lesa má frekar um þetta allt o.m.fl. á www.xg.is

Kjartan Örn Kjartansson

Höfundur er varaformaður XG Hægri grænna, flokks fólksins

og í 1. sæti á lista hans í Reykjavík norður

Nýjast