Félagsheimili Karlakórs Akureyrar-Geysis Lón - var málað innandyra í dag. Allar raddir kórsins mættu snemma og tóku til hendinni. Ágúst Ólafsson formaður KAG segir að verkið hafi gengið vonum framar, enda hafi málarinn Snorri Guðvarðarson stjórnað verkinu. Allar raddir kórsins mættu, en auðvitið er mismunandi hversu lagnir menn eru. Sá sem er ekki laginn við pensilinn, getur auðveldlega gert eitthvað annað. Við svona verkefni þarf til dæmis sendil, sem sótti súpu handa okkur í hádeginu. Þetta hefur verið fínn dagur og við erum enn stoltari af Lóni eftir þessa törn í dag.