Tengdó í Hofi

Tengdó, Grímusýning ársins, verður sýnd í Hofi í 13. og 14. febrúar. Sýningin er óvenju persónuleg þar sem skyggnst er inn í fjölskyldusögu listamannanna. Í forgrunni er áratugalöng leit „ástandsbarns“ að föður sínum og djúpstæð þörf hennar á að þekkja uppruna sinn en um leið er horft gagnrýnum augum á íslenskt samfélag þá og nú. Leikhópurinn CommonNonsense hefur vakið athygli fyrir nýstárlegar sýningar sem ramba á barmi myndlistar og leikhúss. Þau hafa áður m.a. sett upp Hrærivélina, CommonNonsense og Forðist okkur. Hópnum bættist mikill liðsstyrkur með leikstjóranum Jóni Páli Eyjólfssyni.

Leikarar: Leikhópurinn CommonNonsense

Höfundar: Valur Freyr Einarsson, Ilmur Stefánsdóttir, Jón Páll Eyjólfsson og Davíð Þór Jónsson.

Leikstjóri: Jón Páll Eyjólfsson

Leikmynd og búningar: Ilmur Stefánsdóttir

Tónlist: Davíð Þór Jónsson

Nýjast