Tekið á móti Brúarfossi með viðhöfn á Akureyri

Gylfi Sigfússon forstjóri Eimskips á Akureyri tók á móti skipinu á Akureyri í dag. Mynd: Karl Eskil
Gylfi Sigfússon forstjóri Eimskips á Akureyri tók á móti skipinu á Akureyri í dag. Mynd: Karl Eskil

Brúarfoss skip Eimskipafélags Íslands kom Akureyrar í morgun. Akureyri er viðkomustaður á nýrri strandleið félagsins sem tengir landsbyggðina beint við Færeyjar, Skotland, England og meginland Evrópu og óbeint inná Skandínavíu og Eystrasalt. Tekið var á móti Brúarfossi með viðhöfn á Akureyri.

Skipið heldur síðan áfram á markaði erlendis með útflutningsvöru og sækir innflutningsvöru fyrir landsbyggðina.

Brúarfoss er 130 metra langt og 20 metra breitt gámaskip skipað íslenskri áhöfn og var smíðað árið 1992. Skipið er búið tveimur krönum sem gerir því kleift að hafa viðkomur í höfnum sem ekki eru búnar landkrönum. Brúarfoss getur borið allt að 724 gámaeiningar og er heildarafl véla skipsins 5.400 KW.

karleskil@vikudagur.is

Nýjast