Atkvæði verða talin í dag í forvali Vinstri grænna í Norðausturkjördæmi. Steingrímur J. Sigfússon ráðherra er sá eini sem sækist eftir fyrsta sæti, en þrír frambjóðendur setja stefnuna á annað sætið. Flokkurinn er nú með þrjá þingmenn, Steingrím, Þuríði Bachman og Björn Val Gíslason. Þuríður Bachman ákvað að draga sig í hlé, en Björn Valur skipti um kjördæmi. Atkvæði verða talin fljótlega eftir hádegi. Frambjóðendur í forvalinu eru í stafrófsröð:
Ásta Svavarsdóttir - 3. 4. sæti
Bjarkey Gunnarsdóttir 2. sæti
Bjarni Þóroddsson 3.-6. sæti
Björn Halldórsson 3. sæti
Edward H Huijbens - 3. sæti
Ingibjörg Þórðardóttir 2. sæti
Sóley Björk Stefánsdóttir 2. sæti
Steingrímur J Sigfússon 1. sæti
Þorsteinn Bergsson 3. sæti